Hoppa yfir valmynd
14. maí 2024 Matvælaráðuneytið

Styrkir til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum

Matvælaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í landbúnaði.

Framleiðendur sem hafa byrjað lífræna aðlögun í samræmi við gildandi reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar geta sótt um. Lífræna aðlögunin skal jafnframt vera undir eftirliti faggildu löggildingarstofunnar Túns.

Athygli er vakin á að sækja ber sérstaklega um styrki í garðyrkju, skv. ákvæðum reglugerðar um stuðning við garðyrkju nr. 1273/2020. Í öðrum landbúnaði er sótt um styrki samkvæmt ákvæðum reglugerðar um almennan stuðning við landbúnað nr. 430/2021.

Umsóknarfrestur er til 15. júní nk, sótt er um á Afurð þar sem má einnig finna upplýsingar um nauðsynleg fylgiskjöl með umsókn.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum