Fjármögnun
Fjármagn til aðgerða er á ólíkum tímaás og fer í gegnum stjórnkerfið eftir mismunandi leiðum
Fjármagn eyrnamerkt loftslagsmálum
Þegar fyrsta útgáfa Aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum var kynnt haustið 2018 kom fram að henni fylgdu 6,8 milljarðar króna og var þar miðað við fjármálaáætlun 2019-2023. Það fjármagn var sérstaklega eyrnamerkt loftslagsmálum og fór í gegnum umhverfis- og auðlindaráðuneytið. Með fjármálaáætlun 2020-2024 jukust enn framlög til málaflokksins og í sérstöku fjárfestingarátaki ríkisstjórnarinnar árið 2020 vegna efnahagsáhrifa Covid-19 var síðan gert ráð fyrir 600 milljónum króna aukalega til orkuskipta og grænna lausna. Útfærsla þeirra verkefna stendur yfir en gert er ráð fyrir 550 milljónum króna vegna orkuskipta og kolefnisbindingar á árinu 2020 og 50 milljónum króna aukalega í nýsköpun í gegnum Loftslagssjóð.
Fjármagn sem sérstaklega er eyrnamerkt loftslagsmálum rennur til dæmis til uppbyggingar hraðhleðslustöðva vítt og breitt um landið, kolefnisbindingar, endurheimtar votlendis og rannsókna og vöktunar vegna loftslagsbreytinga. Það fer einnig í aðgerðir gegn matarsóun, ýmiss konar úttektir og greiningar, fræðslu og eflingu stjórnsýslu til að takast á við auknar skuldbindingar í loftslagsmálum, svo dæmi séu tekin.
Skattastyrkir og breyttar ferðavenjur
Margvíslegar aðgerðir sem tengjast loftslagsmálum beint og eru hluti af aðgerðaáætluninni eru fjármagnaðar með öðrum hætti og í gegnum önnur ráðuneyti. Framlag ríkisins til uppbyggingar samgöngumannvirkja samkvæmt Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þar með talið Borgarlínu og hjóla- og göngustíga, er til að mynda að lágmarki 45 milljarðar króna til ársins 2033. Þetta er því verkefni til margra ára. Verkefni geta hins vegar einnig verið stök eða haft miklu skemmri tímaramma. Ferjan Herjólfur var til að mynda rafvædd og kostnaðurinn, um 800 milljónir króna, greiddur á einungis tveimur árum.
Kostnaður ríkissjóðs vegna loftslagsmála er einnig í formi skattastyrkja. Síðastliðin ár hefur ríkissjóður gefið eftir hluta af virðisaukaskatti vegna kaupa á rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbifreiðum til þess að hvetja til kaupa á þeim í stað bifreiða sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Bara á árinu 2019 námu slíkir skattastyrkir tæplega 2,7 milljörðum króna. Ívilnanirnar hafa nú verið framlengdar og útvíkkaðar og ýmsir skattastyrkir bæst við, meðal annars vegna vistvænna hópbifreiða í almenningsakstri, rafmagnshjóla og reiðhjóla. Áætlað er að með þessu verði skattastyrkirnir ríflega 3,4 milljarðar króna á árinu 2020.
Myndin hér að neðan sýnir stærstu fjármögnunarliði aðgerðaáætlunarinnar og hvernig fjármagnið dreifist yfir tíma. Á myndinni er miðað við árið 2018 en fyrsta útgáfa Aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum kom út það ár.
Áætlunin er fjármögnuð á ýmsa vegu
Fjármagn til aðgerða í loftslagsmálum er á ólíkum tímaás og fer í gegnum stjórnkerfið eftir mismunandi leiðum
Mynd. Fjármögnun stærstu verkefna sem tengjast loftslagsmálum á árunum 2018-2033.
Gildandi fjármálaáætlun tekur til áranna 2020-2024. Þegar einungis er miðað við þau ár sést að á fimm ára tímabili renna að lágmarki 46 milljarðar króna til stærstu verkefna í loftslagsmálum hér á landi. Taka ber fram að ekki er um tæmandi lista að ræða, þar sem fjármagn til aðgerða fellur ekki allt undir þá liði sem þar eru tilgreindir, auk þess sem flestir skattastyrkirnir gilda út árið 2023 og áframhald þeirra verður metið þegar nær dregur, byggt á mati á þörf.
46 milljarðar á 5 árum vegna stærstu verkefna
Miðað við gildandi fjármálaáætlun og strstu liðina sem tengjast loftslagsmálum
Mynd. Fjármögnun stærstu verkefna sem tengjast loftslagsmálum miðað við gildandi fjármálaáætlun, 2020-2024.
Loftslagsmál: Fjármögnun
- Milljónir króna
2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | Samtals | |
|
||||||
Fjármagn sérstaklega eyrnamerkt loftslagsmálum | 1.635* | 1.385 | 1.685 | 2.185 | 2.185 | |
Samtals | 1.635 | 1.385 | 1.685 | 2.185 | 2.185 | 9.075 |
|
||||||
Ívilnanir vegna vistvænna ökutækja, virkra ferðamáta og hleðslustöðva | 3.410 | 3.590 | 3.965 | 3.175 | 180** | |
Samtals í formi skattastyrkja | 3.410 | 3.590 | 3.965 | 3.175 | 180 | 14.320 |
|
||||||
Breyttar ferðavenjur — styrkir vegna strætó | 1.718 | 1.736 | 1.754 | 1.773 | 1.792 | |
Breyttar ferðavenjur — styrkir til Borgarlínu, göngu- og hjólastíga | 3.015 | 3.011 | 3.020 | 2.510 | 2.630 | |
Samtals | 4.733 | 4.747 | 4.774 | 4.283 | 4.422 | 22.959 |
Heildarfármagn eftir árum |
|
|
|
|
|
|
* Með viðbótarfjármagni úr sérstöku fjárfestingaátaki vegna efnahagsáhrifa Covid-19.
** Ívilnanirnar gilda út árið 2023 og áframhald þeirra verður metið þegar nær dregur, byggt á mati á þörf
Tafla. Fjármögnun stærstu verkefna sem tengjast loftslagsmálum miðað við gildandi fjármálaáætlun, 2020-2024, brotið niður á einstaka liði.
Við hverja aðgerð fyrir sig í aðgerðaáætluninni má sjá umfjöllun um kostnað undir liðnum „áhrif á ríkissjóð“.
Aðgerðir í loftslagsmálum
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.